Fótbolti

Henry sagður hafa samið við Red Bulls

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Spænskir fjölmiðlar segjast hafa heimildir fyrir því að franski framherjinn Thierry Henry sé búinn að semja við bandaríska liðið New York Red Bulls.

Henry fer því til Bandaríkjanna eftir HM en Barcelona leyfir honum að fara frá félaginu þó svo hann sé samningsbundinn.

Fyrsta ár Henry hjá Barcelona gekk ekki vel en annað árið hans var mjög fínt. Hann fann sig síðan engan veginn í vetur og hefur takmarkað fengið að spila.

Henry skoraði á sínum tíma 174 mörk í 254 leikjum fyrir Arsenal. Hann skoraði 35 mörk í 78 leikjum fyrir Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×