Fótbolti

Villa nálgast Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Villa í leik með spænska landsliðinu.
David Villa í leik með spænska landsliðinu. Nordic Photos / AFP
Allt útlit er fyrir að David Villa, sóknarmaður Valencia, sé á leið til Barcelona.

Joan Laporta, forseti Barcelona, sagði að félögin hefðu náð saman í grunnatriðum en að ótímabært væri að segja hvenær verði gengið frá samningum.

„Við vonum þó að hægt verði að ganga frá þessu áður en HM hefst," sagði Laporta við Marca.

Talið er að Valencia sé einnig reiðubúið að selja David Silva og hefur hann helst verið orðaður við Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×