Fótbolti

Það verður hægt að kaupa David Villa frá Barcelona fyrir 32 milljarða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Villa í Barcelona búningnum.
David Villa í Barcelona búningnum. Mynd/AFP
David Villa stóðst læknisskoðun í dag og Barcelona gekk í framhaldinu endanlega frá kaupunum á honum frá Valencia. Barcelona kaupir David Villa á 40 milljónir evra eða vel rúmlega sex milljarða íslenskra króna. Villa gerði fjögurra ára samning við spænsku meistarana með möguleika á fimmta árinu.

Það er regla á Spáni að gefa upp þá upphæð sem mun kosta önnur lið að kaupa upp samninginn og það er engin smáupphæð í tilfelli Villa. Það verður hægt að kaupa Villa frá Barcelona til ársins 2014 en það mun kosta viðkomandi félag 200 milljónir evra eða 32 milljarða íslenskra króna.

Hinn 28 ára spænski landsliðsframherji skoraði 28 mörk í 45 leikjum í öllum keppnum með Valencia á þessu tímabili. Villa skoraði alls 108 deildarmörk í 166 leikjum með Valencia frá 2005 til 2010.

David Villa verður kynntur til leiks á Camp Nou í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×