Fótbolti

Guardiola reiður út í umboðsmann Zlatans

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mynd/Nordic Photos/Getty

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hefur loksins rofið þögnina um Zlatan Ibrahimovic og hann ræðst harkalega að umboðsmanni leikmannsins, Mino Raiola, fyrir það hvernig hann heldur á málum skjólstæðings síns.

"Ég er orðinn þreyttur á þessu máli með Ibrahimovic. Við verðum að sjá hvað gerist.  Ég er langt frá því að vera sáttur við hvernig þetta mál hefur verið meðhöndlað. Ég er stjórinn hér og ákvað að velja hann ekki í leikinn gegn Racing Santander á morgun," sagði Guardiola.

"Ef allt væri eðlilegt þá hefði ég valið hann í hópinn. Eins og staðan er núna var best að sleppa því. Hvað varðar Raiola þá furða ég mig á því hvað hann þykist þekkja mig vel. Ég hef aðeins hitt hann einu sinni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×