Fótbolti

Forlán vill ekki fara frá Atletico Madrid

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Diego Forlán ætlar ekki að fara frá Atletico Madrid í sumar. Þetta kemur fram í Daily Mirror í dag sem vitnar í framherjann knáa. Hann hefur verið magnaður á Spáni og frábær á HM en hinn 31 árs gamli Forlán var talinn vera á óskalista Tottenham. "Ég er ánægður í Madríd og ég á þrjú ár eftir af samningi mínum þar," sagði Forlán. "Ég ætla ekki að fara. Núna vil ég bara eiga jafn gott tímabil og það sem var að klárast," sagði Forlán sem eins og allir muna átti erfiða tíma á Englandi með Manchester United og er því lítt hrifinn af hugmyndinni að klára ferilinn þar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×