Fótbolti

Sevilla spænskur bikarmeistari

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jesus Navas er hér í baráttunni við Simao Sabrosa, leikmann Atletico.
Jesus Navas er hér í baráttunni við Simao Sabrosa, leikmann Atletico.

Sevilla vann í kvöld spænska konungsbikarinn. Liðið lagði Atletico Madrid, 2-0, í úrslitaleik sem fór fram á Camp Nou í Barcelona.

Það var Diego Capel sem kom Sevilla yfir strax á 5. mínútu. Leikurinn var afar fjörugur í kjölfarið og Madrid fékk svo sannarlega færi til þess að jafna leikinn. Það gerði liðið samt ekki.

Jesus Navas gulltryggði síðan sígurinn í uppbótartíma. Þá voru leikmenn Atletico orðnir fámennir í vörninni og hann slapp í gegn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×