Fótbolti

Cristiano Ronaldo yngri lítur út alveg eins og pabbi sinn

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Cristiano Ronaldo hefur ákveðið að skíra son sinn eftir sjálfum sér. Eins og frægt er orðið eignaðist Ronaldo son fyrir skemmstu með aðstoð staðgöngumóður. Cristiano Ronaldo yngri líður mjög vel að sögn systur leikmannsins. "Við önnumst strákinn á meðan pabbi hans er í burtu. Hann lítur út alveg eins og pabbi sinn," sagði Katia Ronaldo. Ronaldo er í fríi í Bandaríkjunum með kærustu sinni, Irönu Shayk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×