Körfubolti

Pietrus sleppur með skrekkinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pietrus keyrir hér inn í bakið á Gasol.
Pietrus keyrir hér inn í bakið á Gasol. Nordic Photos/Getty Images

NBA-deildin mun ekki aðhafast frekar yfir ruddaskap Mickael Pietrus, leikmanns Orlando Magic, í garð Pau Gasol hjá Lakers í leik liðanna í nótt.

Pietrus keyrði þá inn í bakið á Gasol með báðum höndum þegar hann var að troða boltanum. Var þá leikurinn nánast búinn og Pietrus pirraður.

Það reyndist Gasol til happs að hann hékk í hringnum og féll því ekki í gólfið með látum.

NBA-deildin er búin að skoða myndbandsupptökur af atvikinu og áttu margir von á að Pietrus fengi leikbann fyrir ruddaskapinn. Af því verður ekki og hann sleppur því með skrekkinn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×