Körfubolti

Eigandi Utah Jazz látinn

Karl Malone og Larry Miller á góðri stund
Karl Malone og Larry Miller á góðri stund NordicPhotos/GettyImages

Larry Miller, eigandi Utah Jazz í NBA deildinni, lést í gærkvöldi. Miller keypti helming í félaginu árið 1985 og keypti það allt ári síðar.

Miller varnaði því í tvígang að þetta litla félag yrði flutt frá Salt Lake City og náði að byggja upp eitt stöðugasta lið NBA deildarinnar síðustu tvo áratugi á einu minnsta markaðssvæði deildarinnar.

Miller var 64 ára gamall og hafði verið alvarlega veikur síðustu misseri. Hann fékk hjartaáfall í fyrra og voru báðir fætur teknir af honum í síðasta mánuði vegna alvarlegrar sykursýki.

Síðustu tíðindin sem Miller fékk að liði sínu var sigur á meisturum Boston Celtics á fimmtudagskvöldið.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×