Körfubolti

NBA-leikmaður sakaður um kynferðislega árás

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jaric sést hér ásamt eiginkonu sinni, ofurmódelinu Adriana Lima.
Jaric sést hér ásamt eiginkonu sinni, ofurmódelinu Adriana Lima. Nordic Photos/Getty Images

Kona nokkur í Philadelphia hefur sakað Marko Jaric, leikmann Memphis Grizzlies í NBA-deildinni, um kynferðislega árás. Hið meinta atvik á að hafa átt sér stað þegar Memphis var að spila í Philadelphia.

Talsmaður Grizzlies vildi ekki tjá sig um málið.

Þessi uppákoma á eflaust ekki eftir að vekja mikla lukku á heimili Jaric sem giftist kærustu sinni til margra ára í síðasta mánuði. Sú heitir Adriana Lima og er eitt þekktasta ofurmódel heimsins.

Jaric er 30 ára gamall og hefur leikið í NBA-deildinni í sjö ár. Hann var valinn af LA Clippers í nýliðavalinu en fór þaðan til Minnesota Timberwolves. Þaðan fór hann svo til Memphis í júní.

Hann hefur ekki beint verið að fara á kostum á þessari leiktíð með aðeins 1,8 stig að meðaltali í leik ásamt því að setja niður aðeins 27 prósent skota sinna.

 



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×