Körfubolti

Rivers sektaður af NBA

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rivers er ekki alltaf ánægður með dómarana.
Rivers er ekki alltaf ánægður með dómarana. Nordic Photos/Getty Images

Doc Rivers, þjálfari meistara Boston Celtics, hefur verið sektaður um 25 þúsund dollara fyrir ummæli sem hann lét falla eftir leik Boston og Chicago Bulls.

Rivers missti stjórn á skapi sínu þegar hann fékk sína aðra tæknivillu og var vísað úr húsinu. Hann varð alveg brjálaður og lét einn dómara leiksins heyra það. Í viðtölum eftir leik hélt hann síðan áfram að rífa kjaft.

Forráðamenn NBA voru greinilega ekki heldur sáttir við framlag dómarans í málinu því hann fékk einnig sekt en ekki var gefið upp hversu há sú sekt var. Hún var samt líklega eitthvað minni en sú sem Rivers fékk.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×