Körfubolti

NBA í nótt: Cleveland rústaði Boston - Wade með 55 stig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dwyane Wade fór á kostum í nótt.
Dwyane Wade fór á kostum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Cleveland undirstrikaði yfirburði sína í austrinu í NBA-deildinni með sigri á meisturum Boston í nótt, 107-76. Þá skoraði Dwyane Wade 55 stig fyrir Miami sem tryggði sér fimmta sætið í austrinu í gærkvöldi.

Cleveland var þegar búið að tryggja sér efsta sætið í Austurdeildinni og þar með heimavallarréttinn í úrslitakeppninni, að minnsta kosti fram að sjálfum úrslitunum.

Sigur Cleveland var sá 39. af alls 40 heimaleikjum liðsins í vetur. Liðið þarf að einn heimaleik til viðbótar til að jafna met Boston frá 1985-86 tímabilinu yfir besta árangur á heimavelli í sögu NBA-deildarinnar. Cleveland á einn heimaleik eftir á tímabilinu, gegn Philadelphia á miðvikudagskvöldið.

LeBron James setti niður fimm þrista í leiknum og skoraði 29 stig fyrir Cleveland sem var með 31-9 forystu eftir fyrsta leikhluta. Liðið náði svo 30 stiga forystu í öðrum leikhluta.

Dwayne Wade bætti persónulegt met er hann skoraði 55 stig í sigri Miami á New York, 122-105.

„Það er í raun alveg fáránlegt að vera svona góður," sagði Mike D'Antoni, þjálfari Knicks, eftir leikinn.

Miami tryggði sér fimmta sæti Austurdeildarinnar með sigrinum og mætir Atlanta í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Atlanta verður með heimavallarréttinn en Wade virðist hreinlega óstöðvandi um þessar mundir.

Wade vantaði aðeins eitt stig upp á að jafna félagsmet Heat sem Glen Rice á. Wade setti niður sex þrista í leiknum og hitti úr 19 af 30 skotum utan af velli.

Toronto vann Philadelphia, 111-104, í síðasta heimaleik sínum í vetur og gaf stuðningsmönnum liðsins örlitla sárabót eftir annars skelfilegt tímabil. Chris Bosh skoraði 22 stig fyrir Toronto.

San Antonio van Sacramento, 95-92. Michael Finley skoraði umdeildan þrist þegar 1,3 sekúndur voru eftir en flestum þótti skotklukkan útrunnin þegar skotið kom.

LA Lakers vann Memphis, 92-75. Andrew Bynum skoraði átján stig fyrir Lakers en þetta er hans þriðji leikur síðan hann byrjaði að spila aftur eftir hnémeiðsli.

Staðan í deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×