Fótbolti

Henry: Það muna allir eftir sigurvegurunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Henry fagnar með Messi.
Henry fagnar með Messi. Nordic Photos/Getty Images

Frakkinn Thierry Henry, leikmaður Barcelona, náði sér góðum af meiðslum og var í byrjunarliði Barcelona í kvöld. Hann náði sér ekki á strik en það setti ekki strik í fagnaðarlætin hjá honum.

„Það muna allir eftir sigurvegurunum, þar liggur munurinn. Það er hægt að spila góðan fótbolta, gefa góðar sendingar en það skiptir ekki máli ef árangurinn er enginn," sagði Henry sem tapaði í úrslitaleik með Arsenal á sínum tíma.

„Það er hreinlega erfitt að útskýra hvað við höfum afrekað á þessari leiktíð. Það hefur ekkert lið á Spáni unnið þessa þrennu. Þetta er alveg einstakur árangur," sagði Henry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×