Körfubolti

Skammaður fyrir að blogga í hálfleik

Villanueva bloggaði í hálfleik í leik á móti Boston á sunnudaginn
Villanueva bloggaði í hálfleik í leik á móti Boston á sunnudaginn Nordic Photos/Getty Images

Framherjinn Charlie Villanueva hjá Milwaukee Bucks í NBA deildinni fékk skammarræðu frá þjálfara sínum Scott Skiles í gær eftir að upp komst að hann bloggaði í hálfleik í leik gegn Boston á sunnudaginn.

Fjölmiðlar komust að því þegar þeir skoðuðu Tweeter-síðu Villanueva að ein færslan kom inn á síðuna í hálfleik á viðureign Milwaukee og Boston.

"Við komum Charlie í skilning um það að við viljum ekki sjá svona lagað gerast aftur. Við viljum ekki blása þetta úr samhengi, en við viljum ekki láta í það skína að okkur sé ekki full alvara með því sem við erum að gera," sagði Scott Skiles þjálfari.

Villanueva skilur viðbrögð þjálfarans. "Ég var með fulla einbeitingu í leiknum eins og hægt er að sjá þegar menn skoða hvernig ég spilaði, en mér datt ekki í hug að gert yrði mál úr þessu," sagði Villanueva.

Hér fyrir neðan má lesa færsluna sem kom inn á Twitter-síðu Villanueva í hálfleik.

"In da locker room, snuck to post my twitt. We're playing the Celtics, tie ball game at da half. Coach wants more toughness. I gotta step up."



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×