Körfubolti

NBA: Sigur hjá Oklahoma

Elvar Geir Magnússon skrifar
Allen Iverson NordicPhotos/GettyImages
Allen Iverson NordicPhotos/GettyImages

Detroit vann sinn fimmta leik í röð í NBA deildinni í gærkvöldi þegar liðið bar sigurorð af New Jersey 83-75. Allen Iverson skoraði 19 stig fyrir Detroit. Fimm aðrir leikir voru í deildinni í gærkvöldi.

Orlando sigraði Chicago 113-94. Rashard Lewis skoraði 21 stig fyrir Orlando. Oklahoma City vann Golden State 107-100 en þetta var aðeins fjórði sigur Oklahoma í 33 leikjum í vetur.

Denver vann útisigur á Toronto 114-110 og Houston vann Milwaukee naumlega 85-81. Los Angeles Clippers tapaði sínum fimmta leik í röð þegar liðið lá á heimavelli fyrir Philadelphia 92-100.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×