Körfubolti

Anthony missir úr þrjár vikur

Anthony skorar 21 stig að meðaltali í leik
Anthony skorar 21 stig að meðaltali í leik NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets í NBA deildinni verður frá keppni næstu þrjár vikurnar með brákað bein í skothendinni.

Anthony fékk högg á hendina í leik gegn Indiana í vikunni en fékk þau góðu tíðindi að hann sleppi við uppskurð.

Meiðsli hans eru ekki ósvipuð þeim sem hrjá Cedric Isom hjá Þór í Iceland Express deildinni, en hann var í gær valinn í úrvalslið fyrstu 11 umferðanna og tók við verðlaunum með gips á hendi.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×