Körfubolti

Deron og Dwyane voru bestir í síðustu viku

Fjórir frábærir bakverðir samankomnir.
Fjórir frábærir bakverðir samankomnir. Mynd/GettyImages

Bakverðirnir Dwyane Wade hjá Miami Heat og Deron Williams hjá Utah Jazz voru valdir bestu leikmenn síðustu viku í NBA-deildinni í körfubolta.

Wade var valinn bestur í Austurdeildinni eftir að hann var með 35,8 stig, 11,3 stoðsendingar og 3,25 stolna bolta að meðaltali í fjórum leikjum Heat í vikunni. Miami vann tvo af þessum fjórum leikjum.

Williams var með 25,3 stig og 11,3 stoðsendingar að meðaltali í þremur sigurleikjum Utah í vikunni. Hann var kosinn besti leikmaðurinn í Vesturdeildinni.

Það skoraði enginn meira í deildinni í þessarri viku en Dwyane Wade og hann var efstur í Austurdeildinni bæði í stoðsendingum og stolnum boltum.

Aðrir sem komu til greina að þessu sinni voru Raymond Felton hjá Charlotte, LeBron James og Mo Williams hjá Cleveland, Dirk Nowitzki hjá Dallas, Yao Ming hjá Houston, Jarrett Jack hjá Indiana, Kobe Bryant hjá Los Angeels Lakers, Devin Harris hjá New Jersey og Tony Parker hjá San Antonio.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×