Körfubolti

Lækkað miðaverð hjá Pistons

Nordic Photos/Getty Images

Handhafar ársmiða hjá Detroit Pistons í NBA deildinni geta átt von á að fá allt að 10% afslátt á miðunum þegar þeir endurnýja þá fyrir næstu leiktíð.

Efnahagsástandið er slæmt í Bandaríkjunum eins og víðar og er það farið að hafa áhrif á félögin í NBA deildinni.

Pistons hefur ákveðið að lækka miðaverð til að koma til móts við stuðningsmenn liðsins en atvinnuleysi í Michigan-fylki mældist hátt í 12% í janúar sem er með því versta sem gerist í Bandaríkjunum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×