Körfubolti

Miklar breytingar hjá San Antonio Spurs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Richard Jefferson.
Richard Jefferson. Nordic Photos/Getty Images

Elsta lið NBA-deildarinnar, San Antonio, Spurs lofaði stuðningsmönnum sínum því að yngja liðið upp í sumar og mæta sterkari til leiks næsta vetur. Forráðamenn liðsins hafa ekki setið auðum höndum það sem af er sumri.

Félagið er búið að næla í Richard Jefferson frá Milwaukee Bucks og sendi Bruce Bowen og Kurt Thomas til Bucks. Spurs sendi Fabricio Oberto síðan til Detroit fyrir Amir Johnson en Johnson fór í kjölfarið beint til Milwaukee líka.

Framkvæmdastjóri Spurs segir að Jefferson komi með ungan anda og góða heilsu til félagsins en Jefferson hefur ekki misst af leik vegna meiðsla í tvö ár.

Jefferson var með 19,6 stig að meðaltali í leik á síðasta tímabili og var með tæplega 40 prósent nýtingu í þriggja stiga skotum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×