Körfubolti

NBA í nótt: LeBron hafði betur gegn Wade

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mo Williams fór á kostum í nótt.
Mo Williams fór á kostum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Stórstjörnurnar LeBron James og Dwyane Wade mættust á vellinum í nótt þar sem Cleveland vann sigur á Miami, 99-89, í NBA-deildinni.

Það var þó Mo Williams sem gerði gæfumuninn fyrir Cleveland í leiknum þar sem hann skoraði tólf af 29 stigum sínum í leiknum á síðustu sjö mínútunum.

LeBron James náði þrefaldri tvennu í leiknum en hann skoraði fjórtán stig, gaf tólf stoðsendingar og tók tíu fráköst.

Dwyane Wade skoraði alls 25 stig í leiknum, gaf tólf stoðsendingar og tók átta fráköst. Hann fékk þó sína aðra tæknivillu í leiknum á lokamínútunni og var því rekinn af velli í fyrsta sinn á sínum ferli.

James sagði eftir leik að hann væri afar ánægður með sigurinn og ekki síst framlag Williams. Ráða mátti á orðum hans að hann væri afskaplega feginn að vera með almennilegan leikmann sér við hlið og ábyrgð liðsins hvíldi ekki öll á herðum hans.

„Mo er frábær leikmaður. Hæfileikar hans koma okkur hinum ekkert á óvart. En þið fréttamenn eruð kannski hissa því þið eruð ekki vanir því að tveir leikmenn í Cleveland eru að skila svona tölum í leik. Síðast var það örugglega þegar að Brad Daugherty og Mark Price voru að spila hér," sagði LeBron.

Atlanta vann Detroit, 87-83, þar sem Josh Smith skoraði nítján stig, Al Horford átján en báðir tóku þeir tólf fráköst í leiknum. Detroit hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir þennan.

Charlotte vann New York, 114-105, og þar með sinn sjötta sigur í röð sem er félagsmet. Gerald Wallace var með 23 stig og þrettán fráköst.

Philadelphia vann Memphis, 110-105. Andre Iguodala var með 24 stig og Andre Miller 20, tíu fráköst og átta stoðsendingar fyrir Philadelphia.

New Orleans vann Oklahoma City, 108-90. Chris Paul var með 21 stig og þrettán stoðsendingar. Þettta var sjöundi sigur New Orleans í röð.

Milwaukee vann Golden State, 127-120. Richard Jeffersen skoraði 35 stig og Milwaukee vann sinn fyrsta sigur í síðustu fjórum leikjum sínum.

Dallas vann Washington, 119-103. Dirk Nowitzky var með 34 stig og Jason Terry 33 fyrir Dallas en Washington tapaði þar með sínum fimmta leik í röð.

Portland vann Minnesota, 95-93. Brandon Roy var með 31 stig fyrir Portland.

Indiana vann LA Clippers, 106-105. Jarret Jack skoraði 25 stig í fjórða leikhluta og náði svo að stela boltanum á lokasekúndum leiksins sem fór langt með að tryggja sigur Indiana í leiknum.

Staðan í deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×