Körfubolti

Leiktíðinni er lokið hjá Stoudemire

Amare Stoudemire hefur orðið fyrir enn einu áfallinu
Amare Stoudemire hefur orðið fyrir enn einu áfallinu Nordic Photos/Getty Images

Framherjinn Amare Stoudemire hjá Phoenix Suns á ekki möguleika á að verða búinn að ná sér af augnmeiðslum sínum áður en úrslitakeppnin í NBA hefst og er því úr leik með liði sínu í vetur.

Læknar staðfestu þetta í samtali við Arizona Republic í dag. Stoudemire skoraði 21,4 stig og hirti 8,1 frákast að meðaltali í leik í vetur.

Þetta er mikið áfall fyrir lið Phoenix sem er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Stoudemire meiddist upphaflega á þessu sama auga í æfingabúðum í október en slapp þá þokkalega vel. Hann ákvað upp frá því að nota hlífðargleraugu, en fleygði þeim skömmu síðar því honum fannst þau trufla sig.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×