Körfubolti

Odom frákastar eins og Jabbar

Lamar Odom er í miklu stuði þessa dagana
Lamar Odom er í miklu stuði þessa dagana NordicPhotos/GettyImages

Lamar Odom átti góðan leik fyrir LA Lakers í nótt sem leið þegar hann skoraði 15 stig og hirti 20 fráköst í sigri liðsins á Atlanta 96-83.

Þetta var fjórði leikurinn í röð sem Odom hirðir 17 fráköst eða meira og önnur eins frammistaða í fráköstunum hefur ekki sést hjá LA Lakers í meira en 30 ár.

Sá leikmaður sem síðast hirti 17 eða fleiri fráköst í fjórum leikjum í röð var sjálfur Kareem Abdul-Jabbar leiktíðina 1975-76.

Odom hefur notið sín vel eftir að miðherjinn Andrew Bynum meiddist í síðasta mánuði.

Odom var með 11,6 stig og 6,1 frákast að meðaltali í leik í janúar, en það sem af er í febrúar hefur hann skorað 16,1 stig og hirti 14,3 fráköst að meðaltali í leik.

Lakers-liðið hefur aðeins tapað einum af sjö leikjum sínum í febrúar og hefur m.a. unnið bæði Cleveland og Boston á útivelli.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×