Körfubolti

Rondo með Boston í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rondo er búinn að jafna sig af ökklameiðslunum.
Rondo er búinn að jafna sig af ökklameiðslunum. Nordic Photos/Getty Images

Rajon Rondo, bakvörður hjá Boston Celtics, segir það vera klárt mál að hann spili gegn Memphis Grizzlies í kvöld en Rondo hefur misst af síðustu tveim leikjum vegna ökklameiðsla.

Þjálfari Rondo, Doc Rivers, var ekki eins áfjáður í að lýsa því að yfir að Rondo spilaði en sagði það líklegt. Rivers sagðist samt ekki ætla að taka neinar áhættur með Rondo.

Rondo snéri sig á ökklanum í leik gegn Cleveland fyrir viku síðan. Celtics hefur síðan tapað þeim tveim leikjum sem það spilaði án Rondo.

Stephon Marbury hefur leyst Rondo af hólmi en ekki staðið sig vel.

Celtics hefur einnig verið án Kevin Garnett, Glen Davis, Brian Scalabrine og Tony Allen í tapleikjunum tveimur.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×