Körfubolti

Roy sneri aftur hjá Portland

NordicPhotos/GettyImages

Brandon Roy spilaði með liði sínu Portland á ný í nótt og skoraði 19 stig í sigri liðsins á Golden State. Roy hafði misst úr fjóra leiki vegna meiðsla á læri og tapaði Portland tveimur þeirra.

LaMarcus Aldridge var stigahæsti maður vallarins með 26 stig en Corey Maggette skoraði 25 fyrir Golden State.

Utah vann áttunda sigur sinn í röð á liði Detroit í nótt 99-82 og hefur ekki tapað fyrir Detroit síðan í mars 2005. Mehmet Okur hitti úr 8 af 9 skotum sínum utan af velli í fyrri hálfleik og kom lítið við sögu í þeim síðari. Okur skoraði 22 stig gegn sínum gömlu félögum, en Rodney Stuckey 19 fyrir Detroit.

Undirmannað lið Houston Rockets burstaði New York heima 96-86. Luis Scola skoraði 18 stig og hirti 11 fráköst fyrir heimamenn en Tim Thomas skoraði 18 fyrir New York.

Charlotte lagði Washington 92-89 og Minnesota er merkilegt nokk taplaust á árinu eftir 106-104 sigur á Milwaukee.

Loks vann Oklahoma nokkuð óvæntan sigur á Chicago á útivelli 109-98 eftir framlengdan leik. Þetta var aðeins sjötti sigur Oklahoma í vetur.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×