Körfubolti

Miami vill framlengja við Wade

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dwyane Wade.
Dwyane Wade. Nordic Photos/Getty Images

Pat Riley, forseti Miami Heat, er á fullu þessa dagana að tryggja framtíð liðsins sem hann ætlar að gera að meisturum á ný. Forgangsatriði hjá Riley er að gera nýjan og lengri samning við stjörnu liðsins, Dwyane Wade.

„Það er algjört forgangsatriði hjá okkur að framlengja við Wade og það væri mjög gott ef hann er til í að skuldbinda sig við liðið til framtíðar. Ég meina hann er okkar aðalmaður," sagði Riley.

„Við erum búnir að vera saman í sjö ár og höfum unnið titil saman. Við elskum þennan strák til dauða. Það er ekki hægt að skipta á honum og nokkrum öðrum. Við skiljum samt að hann hefur rétt til þess að bíða með að semja við okkur."

Wade er á meðal margra stjarna deildarinnar sem gæti verið laus allra mála eftir næstu leiktíð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×