Körfubolti

NBA í nótt: Fimmti heimasigur Knicks í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nate Robinson átti góðan leik fyrir New York í nótt.
Nate Robinson átti góðan leik fyrir New York í nótt. Nordic Photos / Getty Images
New York Knicks vann sinn fimmta heimasigur í röð í NBA-deildinni í körfubolta er liðið vann Atlanta Hawks, 112-104, í nótt.

Nate Robinson átti enn einn stórleikinn og skoraði 24 stig í leiknum, þar af 20 í síðasta fjórðungnum og átti þar með stærstan þátt í sigri New York.

Hann skoraði átta stig í röð fyrir Knicks þegar að liðið komst í 96-85 forystu þegar sex mínútur voru eftir af leiknum.

Marvin Williams var með 28 stig og Josh Smith 26 fyrir Atlanta.

Philadelphia vann Houston, 95-93. Andre Iguodala skoraði sigurkörfuna þegar hálf mínúta var til leikslokia en alls var hann með 20 stig í leiknum. Philadelphia var á tíma fjórtán stigum undir í leiknum.

Tracy McGrady var með 24 stig í leiknum, Luis Scola átján og tíu fráköst. Þetta var þriðji tapleikur Houston í síðustu fjórum leikjum liðsins.

Boston vann Sacramento, 119-100. Eddie Houst skoraði 28 stig í leiknum og setti niður átta þrista sem er persónulegt met hjá honum. Rajon Rondo var með 24 stig og níu stoðsendingar en þetta var níundi sigur Boston í röð. Hins vegar var þetta sjöunda tap Sacramento í röð.

Miami vann Washington, 93-71. Dwyane Wade var með fjórtán stig í leiknum, níu fráköst og níu stoðsendingar en hvíldi þó allan fjórða leikhlutann. Daequan Cook og Michael Beasley voru stigahæstir hjá Miami með sextán stig hvor.

Indiana vann Milwaukee, 107-99. TJ Ford var með 34 stig í leiknum og Jarrett Jack fjórtán. Charlie Villanueva skoraði 28 fyrir Milwaukee.

Detroit vann Minnesota, 98-89. Rasheed Wallace var með 25 stig og tíu fráköst. Allen Iverson bætti við nítján stig og Antonio McDyess fjórtán og tíu fráköstum.

New Orleans vann Denver, 94-81. Peja Stojakovic skoraði 26 stig og Devin Brown átján. Chris Paul var með tólf stig og tíu stoðsendingar.

Oklahoma City vann Memphis, 114-102. Kevin Durant var með 35 stig og Jeff Green 23 en hann setti niður fimm þrista í leiknum.

Toronto vann New Jersey, 107-106. Jose Calderon var með sautján stig og ellefu stoðsendingar en Devin Harris hefði getað tryggt New Jersey sigurinn með körfu í blálokin. Það geigaði hins vegar. Anthony Parker var með 21 stig fyrir Toronto og Chris Bosh átján.

Dallas vann Golden State, 117-93. Jason Terry skoraði 22 stig fyrir Dallas sem kláraði leikinn í öðrum leikhluta er þeir Dirk Nowitzky og Josh Howard tóku til sinna mála.

Chicago vann LA Clippers, 95-75. Luol Deng var með 23 stig í leiknum og Derrick Rose 21. Eric Gordon skoraði nítján stig fyrir Clippers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×