Körfubolti

Iverson vill frekar hætta en dúsa á bekknum

Nordic Photos/Getty Images

Skorunarmaskínan Allen Iverson hjá Detroit Pistons í NBA deildinni hefur allt á hornum sér þessa dagana.

Hinn smái en knái leikmaður hefur átt við meiðsli að stríða í baki og hefur verið á varamannabekk liðsins í síðustu leikjum þar sem hann er smátt og smátt að ná heilsu.

Iverson segist hata þetta nýja hlutverk sitt og segist frekar vilja hætta að spila en halda áfram að vera varamaður.

"Þetta er alveg nýtt fyrir mér. Ég hef aldrei á mínum ferli verið varamaður. Ég kem inn í leikinn í stuttan tíma og fer út aftur áður en ég næ mér á strik og svo þarf ég að koma inn aftur. Það er óþægilegt og ég er bæði í vandræðum með meiðslin og að aðlagast þessu. Frekar vil ég hætta að spila en gera þetta aftur, því ég nýt mín ekkert ef ég spila svona," sagði Iverson.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×