Körfubolti

NBA í nótt: Atlanta á siglingu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Joe Johnson í leiknum í nótt.
Joe Johnson í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images

Atlanta Hawks er á góðri leið með að ná sér í heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA-deildinni í körfubolta en liðið vann sinn áttunda sigur í síðustu níu heimaleikjum sínum í nótt.

Atlanta vann Minnesota, 109-97, þar sem Flip Murray skoraði 30 stig sem er persónulegt met hjá honum í vetur. Joe Johnson og Mike Bibby voru með 20 stig hvor.

Atlanta hefur alls unnið 28 af 35 heimaleikjum sínum í vetur og gætu því reynst erfiðir viðureignar í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í vor. Þeir eiga þriggja og hálfs leiks forystu á Miami sem er í fimmta sætinu.

Liðið á þó erfiða leiki heima fyrir í vikunni. Fyrst gegn San Antonio annað kvöld, svo Boston og loks Los Angeles Lakers á sunnudaginn.

Þetta var fimmta tap Minnesota í röð. Randy Foye var með nítján stig og Kevin Love sautján.

Boston vann LA Clippers, 90-77. Ray Allen var með 20 stig fyrir Boston.

Orlando vann New York, 106-102. Dwight Howard var með 29 stig og fjórtán fráköst fyrir Orlando. Það var þó Hedo Turkoglu sem var aðalmaðurinn í fjórða leikhluta leiksins.

Miami vann Memphis, 94-82. Dwyane Wade skoraði 27 stig og bætti þar með sitt eigið stigamet hjá félaginu yfir heilt tímabil. Hann gaf þar að auki átta stoðsendingar.

Chicago vann Washington, 101-99. Ben Gordon skoraði 21 stig, þar af sjö á síðustu þremur og hálfri mínútunni.

Phoenix vann Denver, 118-115, og hélt þar með í vonina um sæti í úrslitakeppninni en þetta var fimmti sigur liðsins í röð. Grant Hill var með 23 stig og Jason Richardson 22. Phoenix er sem stendur í níunda sæti Vesturdeildarinnar, þremur sigurleikjum á eftir Dallas.

Philadelphia vann Portland, 104-103, í framlengdum leik. Andre Miller varm eð 27 stig og tíu fráköst og þeir Thaddeus Young og Andre Iguodala bættu við 25 stigum hvor.

Staðan í deildinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×