Körfubolti

Cleveland tryggði sér toppsætið í Austurdeild

LeBron James er hér í baráttu við Andre Iquodala hjá Philadelphia
LeBron James er hér í baráttu við Andre Iquodala hjá Philadelphia AP

Þrettán leikir voru í NBA deildinni í nótt þar sem línur eru nú farnar að skýrast í deildarkeppninni. Cleveland tryggði sér efsta sæti Austurdeildar með sigri á Philadelphia á útivelli 102-92.

LeBron James skoraði 27 stig og gaf 10 stoðsendingar fyrir Cleveland í sigrinum, en liðið hefur nú unnið 64 leiki og tapað aðeins 15. Ben Wallace spilaði sinn annan leik í röð með Cleveland eftir að hafa verið frá síðan í lok febrúar vegna fótbrots.

Liðið sem hefur náð bestum árangri allra liða í Austurdeildinni hefur reyndar tapað í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar í úrslitakeppninni fimm sinnum á síðustu sex árum. Aðeins Boston vann Austurdeildina (á síðustu leiktíð) eftir að hafa verið með besta árangurinn í deildarkeppninni.

Boston lagði Miami 105-98. Paul Pierce var frábær hjá Boston með 28 stig og Rajon Rondo skoraði 7 stig, hirti 10 fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Dwyane Wade skoraði 31 stig fyrir Miami.

Detroit lagði New Jersey 100-93 og tryggði sér sæti í úrslitakeppninni áttunda árið í röð. San Antonio lagði Utah 105-99 á heimavelli og var þetta 20. heimasigur liðsins í röð heima gegn Utah.

Dallas komst upp fyrir Utah í sjöunda sæti Vesturdeildarinnar með auðveldum sigri á New Orleans 100-92. Chris Paul fór hamförum hjá New Orleans með 42 stigum, 9 fráköstum og 7 stoðsendingum, en fékk litla hjálp frá félögum sínum.

LA Lakers mátti sætta sig við tap gegn frísku liði Portland á útivelli 106-98. Brandon Roy skoraði 24 stig fyrir Portland en Kobe Bryant 32 fyrir Lakers.

Staðan í NBA deildinni

Úrslitin í nótt:

Orlando Magic 95-105 New York Knicks

LA Clippers 109-78 Sacramento Kings

Dallas Mavericks 100-92 New Orleans Hornets

Toronto Raptors 98-100 Washington Wizards

Philadelphia 76ers 92-102 Cleveland Cavaliers

San Antonio Spurs 105-99 Utah Jazz

Atlanta Hawks 122-118 Indiana Pacers

Memphis Grizzlies 106-89 Phoenix Suns

Portland Trail Blazers 106-98 LA Lakers

Detroit Pistons 100-93 New Jersey Nets

Boston Celtics 105-98 Miami Heat

Golden State Warriors 109-113 Houston Rockets

Oklahoma City 84-81 Charlotte Bobcats



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×