Körfubolti

Wade og Gasol leikmenn mánaðarins

Dwyane Wade hefur verið stórkostlegur með Miami í vetur
Dwyane Wade hefur verið stórkostlegur með Miami í vetur AP

Dwyane Wade hjá Miami Heat og Pau Gasol hjá LA Lakers hafa verið útnefndir leikmenn febrúarmánaðar í Austur- og Vesturdeildinni í NBA.

Wade var stigahæsti leikmaður Austurdeildarinnar í febrúar með 30,7 stig og setti m.a. persónulegt met með því að skora 50 stig í leik gegn Orlando þann 22. febrúar. Miami vann helminginn af tólf leikjum sínum í mánuðinum.

Gasol tók upp hanskann fyrir hinn meidda Andrew Bynum í liði LA Lakers og skoraði 21 stig og hirti 11 fráköst þegar Lakers vann 11 af 13 leikjum sínum í febrúar. Hann var með rúmlega 58% skotnýtingu og Lakers-liðið vann m.a. sigra á bæði Boston og Cleveland á útivelli í febrúar.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×