Körfubolti

Fékk tvisvar heilahristing á þremur dögum

Framherjinn rauðbirkni Brian Scalabrine hjá meistaraliði Boston Celtics í NBA deildinni verður frá keppni um óákveðinn tíma eftir að hafa fengið heilahristing í tvígang á aðeins þremur dögum.

Scalabrine er mikill baráttuhundur og því gríðarlega vinsæll meðal stuðningsmanna Celtics, en nú er ljóst að hann þarf að taka sér frí frá æfingum um óákveðinn tíma.

Hann fékk högg á höfuðið í leik gegn Dallas á sunnudagskvöldið og varð svo fyrir olnboga félaga síns Patrick O´Bryant á æfingu í gærkvöld.

Scalabrine hefur sex sinnum verið í byrjunarliði Boston í vetur en þá fyllti hann skarð miðherjans Kendrick Perkins sem átti við axlarmeiðsli að stríða.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×