Sport

Tampa Bay jafnaði metin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Price var hetja Tampa Bay í nótt eftir að hann kom í veg fyrir að Phillies kæmist á skrið í níundu lotu.
David Price var hetja Tampa Bay í nótt eftir að hann kom í veg fyrir að Phillies kæmist á skrið í níundu lotu. Nordic Photos / Getty Images

Tampa Bay Rays jafnaði í nótt metin í úrslitarimmu bandarísku hafnarboltadeildarinnar eftir 4-2 sigur á Philadelphia Phillies. Staðan í rimmunni er nú 1-1.

Tampa Bay komst í 3-0 strax eftir fyrstu tvær loturnar á meðan að Phillies komst ekki á blað í fyrr en í þeirri áttundu.

Næstu þrír leikirnir fara fram á heimavelli Phillies sem geta tryggt sér titilinn með sigri í þeim öllum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×