Körfubolti

Anthony skoraði 32 stig í sigri Denver

Einum leik er þegar lokið í NBA deildinni í körfubolta í kvöld. Denver gerði góða ferð til New York og lagði heimalið Knicks 117-110.

Carmelo Anthony sneri aftur í lið Denver eftir að hafa misst úr þrjá leiki vegna meiðsla.

Kappinn hafði greinilega gott af því að taka sér vikufrí um jólin og sallaði 32 stigum á slakt varnarlið New York sem þarna tapaði sínum sjötta leik í röð. Denver var með 57% skotnýtingu í leiknum.

Nate Robinson skoraði 20 stig fyrir New York og David Lee skoraði 19 stig og hirti 12 fráköst. Chris Duhon skoraði 17 stig og gaf 11 stoðsendingar.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×