Körfubolti

Ben Gordon tók fram úr Scottie Pippen

Ben Gordon er atkvæðamesta þriggja stiga skytta í sögu Chicago Bulls
Ben Gordon er atkvæðamesta þriggja stiga skytta í sögu Chicago Bulls NordicPhotos/GettyImages

Ben Gordon fór í nótt fram úr Scottie Pippen á listanum yfir þá sem skorað hafa flesta þrista í sögu Chicago Bulls í NBA deildinni.

Gordon hitti úr 6 af 8 langskotum sínum gegn Atlanta í gærkvöld og hefur nú skorað 669 þrista í aðeins 346 leikjum fyrir Chicago.

Gamla metið átti Scottie Pippen sem skoraði 664 þrista í 856 leikjum fyrir félagið.

Eins og sjá má á tölfræðinni hefur Gordon verið mun duglegri við að skjóta þristum en Pippen nokkru sinni, en Gordon er með 41,6% nýtingu úr langskotum á ferlinum með Bulls sem spannar á fimmta ár.

Pippen var hinsvegar aðeins með rúmlega 32% nýtingu úr langskotum á ferlinum þar sem hann spilaði lengst af með Chicago (1987-98).



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×