Körfubolti

Körfurnar í Phoenix þurfa að vera Shaq-heldar

O´Neal er byrjaður að refsa körfunum í Phoenix og er væntanlegur til keppni fljótlega
O´Neal er byrjaður að refsa körfunum í Phoenix og er væntanlegur til keppni fljótlega Nordic Photos / Getty Images

Leikmenn Phoenix Suns hafa farið þess á leit að körfurnar í æfingahúsnæði liðsins verði gerðar Shaq-heldar eftir að Shaquille O´Neal gekk í raðir liðsins og byrjaði að æfa.

O´Neal er engin smásmíði og afrekaði það fyrir 15 árum síðan að rífa niður körfu í leik í Phoenix þegar hann var leikmaður Orlando Magic. Síðan hafa körfurnar á heimavelli Phoenix - og reyndar í allri deildinni - verið styrktar til muna, en sömu sögu er ekki að segja um körfurnar í æfingahúsnæðinu.

Leikmenn eins og Brian Skinner og Sean Marks sem hafa þurft að gæta O´Neal á æfingum undanfarna daga eru farnir að óttast um helsu sína eftir tröllatroðslur miðherjans stóra. Þeir óttast að fá körfurnar í höfuðið ef O´Neal rífur þær niður.

"Þeir sögðu að þeim liði hreint ekki vel undir þessum kringumstæðum og ég er hreint ekki hissa á því," sagði starfsmaður Phoenix.

"Þetta dót er allt að hrynja," sagði Leandro Barbosa, leikmaður Phoenix og hristi höfuðið eftir að hafa horft á eina tröllatroðsluna frá O´Neal.

Körfurnar hjá Phoenix hafa til þessa verið færanlegar, en til stendur að hóa í járnsmiði til að sjóða þær fastar eftir komu Shaquille O´Neal. Hann er nú óðum að ná í form eftir meiðsli og er "ekki nema" 147 kíló - sem er fjarri því að vera það þyngsta sem hann hefur verið á ferlinum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×