Körfubolti

Varejao úr leik fram yfir stjörnuleik

Hinn hárprúði Varejao er lykilmaður í liði Cleveland
Hinn hárprúði Varejao er lykilmaður í liði Cleveland Nordic Photos / Getty Images

Brasilíumaðurinn Anderson Varejao hjá Cleveland getur ekki spilað með liði sínu fyrr en í fyrsta lagi í kring um 20. febrúar eftir að hann sneri sig illa á ökkla í leik með liði sínu á sunnudaginn.

Áður hafði liðið misst bakvörðinn Sasha Pavlovic í meiðsli og hann verður frá keppni næstu vikurnar.

Þessi meiðsli koma illa við Cleveland því liðið hefur verið á mikilli siglingu síðasta mánuðinn eftir afleita byrjun í haust.

Það var ekki síst vegna fjarveru þeirra Pavlovic og Varejao sem Cleveland var í vandræðum framan af keppnistímabilinu, en þá voru þeir utan liðsins vegna deilna um samningamál.

Cleveland hefur unnið 24 leiki og tapað 19, en þar af hefur liðið unnið 10 af síðustu 12 leikjum sínum í janúar. Liðið er sem stendur í fjórða sæti Austurdeildarinnar eftir að hafa verið úti úr myndinni í úrslitakeppnina á tímabili.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×