Körfubolti

Nash sá um Milwaukee

Phoenix heldur efsta sætinu í Vesturdeildinni
Phoenix heldur efsta sætinu í Vesturdeildinni Nordic Photos / Getty Images

Steve Nash setti persónulegt met í vetur þegar hann skoraði 37 stig fyrir Phoenix í 114-105 sigri liðsins á Milwaukee á útivelli. Phoenix er í efsta sæti Vesturdeildarinnar og varð aðeins annað liðið í NBA á eftir Boston til að vinna 30 leiki í vetur.

Nash er vanur að láta félaga sína sjá um að skora stigin en hann var í miklum ham í nótt og skoraði 15 af 37 stigum sínum í fjórða leikhlutanum þegar gestirnir stungu af.

"Það er ekki alveg minn leikur að skora mikið en þetta var einn af þessum leikjum þar sem við náum ekki alveg að koma sókninni í gírinn," sagði Nash eftir leikinn, en hann gaf auk þess 10 stoðsendingar. Hann skoraði 35 stig í fyrri viðureign liðanna í Phoenix í vetur.

Varnarleikur Milwaukee gekk mikið út á að reyna að halda aftur af miðherjanum Amare Stoudemire, en það gekk ekki betur en það að Stoudemire skoraði 10 af 19 stigum sínum í fjórða leikhlutanum og lauk leik með 12 fráköst.

Grant Hill lék með Phoenix á ný eftir botnlangauppskurð og skoraði 8 stig.

Michael Redd fór fyrir liði Milwaukee í sóknarleiknum og skoraði 28 stig. Andrew Bogut skoraði 19 stig og hirti 13 fráköst og Bobby Simmons skoraði 15 stig. Bakvörðurinn Mo Williams spilaði ekki með Milwaukee í leiknum en hann sneri sig á ökkla í síðasta leik.

Sacramento burstaði New Jersey

Í síðari leik kvöldsins í deildinni vann Sacramento auðveldan sigur á New Jersey Nets í sjónvarpsleiknum á NBA TV 128-94. Heimamenn byrjuðu betur og náðu 11 stiga forskoti strax í fyrsta leikhluta - og bættu við eftir því sem leið á leikinn.

Sacramento liðið hefur átt við mikil meiðsli að stríða í vetur en hefur nú endurheimt alla sína menn úr meiðslum.

Ron Artest skoraði 27 stig og stal 5 boltum fyrir heimamenn í leiknum, Kevin Martin skoraði 19 stig og Mike Bibby skoraði 15 stig.

Vince Carter var atkvæðamestur í liði gestanna með 21 stig og 8 stoðsendingar og Richard Jefferson skoraði 18 stig.

Smelltu hér til að skoða stöðuna í NBA deildinni.

Smelltu hér til að skoða NBA bloggið á Vísi.is

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×