Körfubolti

Green ver titil sinn í troðkeppninni

Gerald Green verður að teljast sigurstranglegur í troðkeppninni í næsta mánuði
Gerald Green verður að teljast sigurstranglegur í troðkeppninni í næsta mánuði Nordic Photos / Getty Images

Háloftafuglinn Gerald Green ætlar að verja titil sinn í troðkeppninni í NBA sem fer fram á undan stjörnuleiknum í New Orleans um miðjan næsta mánuð.

Green lék með Boston í fyrra en er nú liðsmaður Minnesota Timberwolves. Á síðasta tímabili hirti Green troðtitilinn af þáverandi meistara Nate Robinson frá New York.

Green fær verðuga samkeppni á þessu ári þar sem hann mætir Jamario Moon frá Toronto, Rudy Gay frá Memphis og miðherjanum Dwight Howard frá Orlando sem einnig tók þátt í fyrra.

Nýtt fyrirkomulag verður tekið upp í keppninni á þessu ári þar sem áhorfendum gefst kostur á að kjósa sinn troðkóng á heimasíðu NBA og gilda atkvæði þeirra á móti atkvæðum dómnefndarinnar í keppninni.

Keppnin verður haldin laugardagskvöldið 16. febrúar í New Orleans, kvöldið fyrir sjálfan stjörnuleikinn sem er á dagskrá kvöldið eftir.

Hér fyrir neðan má sjá hverjir hafa orðið troðkóngar í NBA árin sem keppnin hefur verið haldin, en Gerald Green getur með sigri í keppninni í næsta mánuði orðið aðeins þriðji maðurinn í sögu keppninnar til að verja titil sinn árið eftir.

Aðeins þrír menn hafa orðið troðkóngar oftar en einu sinni. Michael Jordan vann tvö ár í röð 1987-88 líkt og Jason Richardson árin 2002-03. Harold Miner náði líka að vinna tvisvar, en það var árin 1993 og 1995.

Troðkeppnin var ekki haldin árin 1998 og 1999, en var svo tekin upp aftur árið 2000 þar sem Vince Carter sigraði með yfirburðum og sýndi einhver fallegustu tilþrif sem sést hafa í keppninni.

Hvað gerir Howard í ár?

Dwight Howard hlaut ekki náð fyrir augum dómara í fyrraNordicPhotos/GettyImages

Jason Richardson var svo í sérflokki tveimur árum síðar en eftir það hafa tilþrifin komið í takmörkuðu upplagi.

Það verður gaman að sjá hvernig tröllinu Dwight Howard tekst til á þessu ári, en margir vildu meina að hann hafi ekki fengið sanngjarna dóma í fyrra fyrir troðslur sínar - þar sem hann m.a. festi límmiða efst á körfuspjaldið áður en hann tróð boltanum.

Howard reyndi að fá það í gegn í fyrra að fá að hækka körfuna upp úr hefðbundinni 305 cm hæð og upp yfir fjóra metra - en það náði ekki fram að ganga.

Eitthvað hefur verið pískrað um að hann muni ef til vill fá ósk sína uppfyllta á þessu ári, en menn vildu ekki leyfa hækkun á körfunni í fyrra af ótta við meiðsli leikmanna.

Troðkóngar í NBA frá árinu 1984:

1984—Larry Nance, Phoenix

1985—Dominique Wilkins, Atlanta

1986—Spud Webb, Atlanta

1987—Michael Jordan, Chicago

1988—Michael Jordan, Chicago

1989—Kenny Walker, New York

1990—Dominique Wilkins, Atlanta

1991—Dee Brown, Boston

1992—Cedric Ceballos, Phoenix

1993—Harold Miner, Miami

1994—Isaiah Rider, Minnesota

1995—Harold Miner, Miami

1996—Brent Barry, L.A. Clippers

1997—Kobe Bryant, L.A. Lakers

2000—Vince Carter, Toronto

2001—Desmond Mason, Seattle

2002—Jason Richardson, Golden State

2003—Jason Richardson, Golden State

2004—Fred Jones, Indiana

2005—Josh Smith, Atlanta

2006—Nate Robinson, New York

2007—Gerald Green, Boston

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×