Körfubolti

Portland vann fjórða leikinn í röð

Brandon Roy skorar fyrir Portland
Brandon Roy skorar fyrir Portland

Portland vann nokkuð sannfærandi 96-85 sigur á Detroit Pistons á útivelli í fyrsta leik kvöldsins í NBA deildinni í körfubolta.

Portland (12-6) tapaði þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum á leiktíðinni en hefur síðan unnið ellefu af fjórtán.

Detroit (10-6) hefur unnið sex leiki og tapað sex síðan Allen Iverson gekk í raðir liðsins og var liðið mjög lengi í gang í kvöld eins og oft áður í vetur. Byrjunarliðsmenn Detroit hittu þannig aðeins úr einu af níu skotum sínum í fyrsta leikhluta.

LaMarcus Aldridge var stigahæstur hjá Portland í leiknum með 27 stig, Brandon Roy skoraði 19 og Greg Oden skoraði 11 stig og hirti 13 fráköst.

Hjá Detroit skoraði Rip Hamilton 18 stig og Rodney Stuckey var með 15 af bekknum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×