Payton langar að spila með Boston 21. desember 2007 15:56 Gary Payton hefði örugglega ekki látið fífla sig á lokamínútunum í leik Boston og Detroit á dögunum NordicPhotos/GettyImages
Leikstjórnandinn Gary Payton er sagður hafa mikinn áhuga á að taka fram skóna að nýju og ganga til liðs við Boston Celtics í NBA deildinni. Payton ákvað að hætta í sumar en hringdi í umboðsmann sinn eftir að hann sá Boston tapa fyrir Detroit í fyrrinótt. "Hann hringdi í mig og sagði mér að sér sýndist Boston alveg geta notað sig eftir að hann sá leikinn í sjónvarpinu heima hjá sér," sagði umboðsmaður hins kjaftfora leikstjórnanda í samtali við Boston Globe. Umboðsmaðurinn hefur sett sig í samband við forráðemenn Boston oftar en einu sinni til að kanna áhuga þeirra á Payton, en þeir eru ekki sagðir of hrifnir af hugmyndinni um að fá Payton aftur til Boston þar sem hann spilaði leiktíðina 2004-05. Það er hinsvegar rétt að Boston vantar nauðsynlega varaleikstjórnanda og því er kannski skiljanlegt að Payton hafi tekið upp símann. Leikstjórnandinn Rajon Rondo hefur staðið sig ágætlega sem byrjunarliðsmaður hjá Boston í vetur, en þegar hans nýtur ekki við, er fátt um fína drætti í stöðunni. Það nýtti Chauncey Billups sér sannarlega í stórleik Boston og Detroit á dögunum þar sem hann gabbaði Tony Allen upp úr skónum í lokin og tryggði gestunum sigurinn.
NBA Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Stöðvuðu bardaga alblóðugrar Valgerðar Sport Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira