Körfubolti

NBA í nótt: 45 stiga sigur Boston á New York

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Það var ekkert sérstök stemning á bekknum hjá New York í nótt.
Það var ekkert sérstök stemning á bekknum hjá New York í nótt. Nordic Photos / Getty Images

Boston Celtics rústuðu lið New York Knicks í einum af þremur leikjum í NBA-deildinni í nótt. Boston vann með 45 stiga mun, 104-59.

Hefði ekki Nate Robinson skorað þriggja stiga körfu í blálokin fyrir New York hefðu leikmenn liðsins afrekað það að skora fæst stig í einum leik í sögu félagsins.

Staðan í hálfleik var 54-31 fyrir Boston sem náðu 45 stiga forystu í þriðja leikhluta. Þegar sjö mínútur voru til leiksloka var munurinn orðinn 52 stig en New York náði að minnka muninn aftur í 45 stig í leikslok.

Isiah Thomas er þjálfari New York og sagði eftir leik að hann hefði ekki séð leikmenn jafn sjálfselska og í fyrri hálfleik í þessum leik.

„Mér fannst eins og að hver einasti leikmaður hefði verið að hugsa um sig sjálfan í stað þess að hugsa um liðið," sagði hann.

Zach Randolph tók í svipaðan streng. „Aldrei hef ég séð nokkru þessu líkt. Aldrei. Aldrei. Aldrei á mínum ferli."

Bæði Randolph og Eddy Curry tóku fimmtán skot í fyrri hálfleik og hittu aðeins úr tveimur. Báðir gerðu fjögur stig í leiknum og hitti Curry úr tveimur af ellefu skotum sínum utan af velli og Randolph úr einu af tíu.

Samtals var skotnýting liðsins 30,3% og var þetta versta tap liðsins í NBA-deildinni í 27 ár.

Þrátt fyrir allt þetta ákvað Doc Rivers, þjálfari Boston, að hvíla sína lykilmenn. Kevin Garnett spilaði í einungis 22 mínútur í leiknum og þeir Ray Allen og Paul Pierce hvíldu í fjórða leikhluta.

Nate Robinson var sá eini sem skoraði meira en tíu stig í liði New York - hann skoraði ellefu í leiknum.

Allen og Pierce voru með 21 stig og Eddie House var með fimmtán stig.

LA Lakers vann góðan sigur á Denver Nuggets á heimavelli, 127-99. Kobe Bryant var með 24 stig, sjö stoðsendingar og sex fráköst. Sasha Vujacic var með 22 stig, þar af nítján í fjórða leikhluta. Hjá Denver var Carmelo Anthony með 23 stig og Allen Iverson 21.

Þá skoraði Baron Davis 27 stig í sigri Golden State, 113-94, á Houston Rockets. Mike James skoraði nítján stig fyrir Houston og Yao Ming bætti við tíu og tók sjö fráköst.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×