Körfubolti

NBA stórveldin mætast á Sýn í nótt

Þríeykið mikla hjá Boston tekur á móti erkifjendunum í LA Lakers í nótt
Þríeykið mikla hjá Boston tekur á móti erkifjendunum í LA Lakers í nótt Nordic Photos / Getty Images

Gömlu stórveldin Boston Celtics og LA Lakers eigast við í NBA deildinni í nótt klukkan hálfeitt eftir miðnætti og verður leikurinn sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn.

Bæði lið hafa byrjað nokkuð vel í deildinni, ekki síst heimamenn, sem eru með besta árangur allra liða - 9 sigra í 10 leikjum. Lakers liðið hefur unnið 7 af 11 leikjum sínum og hefur í raun komið nokkuð á óvart eftir ólguna sem var í herbúðum liðsins í kring um Kobe Bryant í sumar.

Boston hefur ekki byrjað betur í 20 ár eftir að liðið fékk til sín þá Kevin Garnett og Ray Allen í sumar. Boston er eina liðið í deildinni sem inniheldur þrjá leikmenn sem skora yfir 20 stig að meðaltali í leik - þríeykið Garnett (20,7 stig, 13 fráköst), Allen (20,3 stig) og Paul Pierce (22,3 stig).

Boston hafnaði í neðsta sæti í Austurdeildinni á síðustu leiktíð með aðeins 24 sigra í 82 leikjum og þar á bæ standa vonir til þess að sjá fyrsta meistaratitilinn í meira en tvo áratugi.

Lakers-liðið er með nánast sama lið og í fyrra en þá byrjaði liðið vel í deildinni en datt út úr úrslitakeppninni í fyrstu umferð eins og árin þar á undan. Ungu leikmennirnir í kring um Kobe Bryant í kjarna liðsins hafa margir hverjir verið að spila ágætlega í haust og Bryant er t.a.m. "aðeins" með um 27 stig að meðaltali í leik - sem er lægsta meðaltal hans í fjögur ár.

Lakers skorar að meðaltali 106,6 stig að meðaltali í leik sem er fjórða hæsta stigaskor í deildinni. Lakers hafði unnið fjóra leiki í röð þegar það tapaði nokkuð óvænt í Milwaukee á miðvikudagskvöldið.

Boston vann sinn síðasta leik nokkuð sannfærandi sigur á Golden State á heimavelli eftir fyrsta tapið á leiktíðinni í leiknum þar á undan. Kevin Garnett hefur farið hamförum með Boston það sem af er og er með rúmlega 63% skotnýtingu utan af velli. Boston vann fyrstu sex leiki sína í deildinni með rúmum nítján stigum að meðaltali.

Það verður því áhugavert að sjá hvernig þessum stórveldum vegnar í kvöld þegar þau eigast við í Boston. Síðustu sigrar Boston hafa komið gegn liðum í lakari kantinum og því verður áskorunin stærri í kvöld.

Lakers vann báðar viðureignir liðanna á síðustu leiktíð með næstum 20 stiga mun að meðaltali, þar sem Kobe Bryant var með 31 stig og 8,5 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Ray Allen var með 31 stig að meðaltali í leik í tveimur leikjum á móti Lakers á síðustu leiktíð, en þá var hann reyndar leikmaður Seattle. Þeir Bryant og Allen hafa eldað grátt silfur í gegn um tíðina og því verður áhugavert að sjá viðureign þeirra á Sýn í kvöld.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×