Körfubolti

Morrison úr leik hjá Bobcats

Morrison var ætlað stærra hlutverk hjá Bobcats í vetur, en nú verður lítið úr því
Morrison var ætlað stærra hlutverk hjá Bobcats í vetur, en nú verður lítið úr því NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn hárprúði Adam Morrison mun að líkindum missa af öllu keppnistímabilinu í NBA deildinni sem hefst í næstu viku. Hann sleit liðband í hné í leik gegn LA Lakers í fyrrakvöld. Charlotte valdi Morrison númer þrjú í nýliðavalinu í fyrrasumar, en hann olli nokkrum vonbrigðum síðasta vetur og skoraði aðeins tæp 12 stig í leik.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×