Körfubolti

Allan Houston 90% viss um að snúa aftur

Allan Houston var ein besta skyttan í NBA áður en meiðsli bundu enda á feril hans
Allan Houston var ein besta skyttan í NBA áður en meiðsli bundu enda á feril hans NordicPhotos/GettyImages
Skotbakvörðurinn Allan Houston segist nú vera 90-95% viss um að taka skóna fram á ný í NBA deildinni í vetur. Houston er bókaður á lokaðar æfingar hjá nokkrum óuppgefnum liðum á næstu dögum og segist vera búinn að ná sér að fullu af hnémeiðslum sem neyddu hann til að hætta að spila fyrir tveimur árum. Hann er 36 ára gamall og hefur verið orðaður hvað sterkast við Dallas og Cleveland.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×