Billjónsdagbók 28.2 Jón Örn Marinósson skrifar 28. febrúar 2007 00:01 ICEX 7.432, þegar ég fór í sturtu, og Nasdaq 2.454 þegar ég skrúfaði fyrir. Var lengi að laga kaffi. Kann ekkert á sjálfvirkar kaffivélar. Hvaða sjálfvirkni er það eiginlega þar sem ekkert virkar af sjálfu sér. Ég veit hvað er raunveruleg sjálfvirkni. Ég er til dæmis fullur af sjálfvirkni. Þess vegna er ég sökksessfúll fjárfestir og alltaf glaður í bragði. Ég er sjálfvirkur eins og markaðurinn. Sjálfvirkur eins og Geir Haarde þegar Viðskiptaráð ýtir á skattalækkunartakkann á honum. Ég þarf ekki sérstaklega að taka ákvörðun um eitt eða neitt. Ég fer bara eftir innstinkti og sjálfsbjargarhvöt. Græði þannig sjálfvirkt nánast. Það er mikil guðsgjöf að búa yfir frumkvæði, glöggu auga fyrir skattalagaglufum og óútskýranlegu viðskiptaviti sem engin lög ná yfir og ekki einu sinni nafnlaus bréf. Stebbi einkadræver ók mér á stjórnarfund í Stinningu ehf. á Hótel Sögu kl. 11.00. Algjör mannauður, hann Stebbi, miklu verðmætari en einkadræverar sem ég nota úti í London og kostar miklu minna en þeir. Það er kosturinn við venjulega Íslendinga að þeir hafa lagað sig að víxlverkun launa og verðlags. Þeir eru hæstánægðir með nokkra tíkalla, prumpa á alla ginistuðla og taka bara lán hjá okkur í bönkunum ef þá langar til að veita sér eitthvað. Lettar og Pólverjar kosta minna í beinhörðum peningum og það er hægt að láta þá sofa í gámum en þeir taka aldrei nein lán í bankanum hjá mér svo að á endanum er meira fyrir mig hafa upp úr Íslendingum eins og Stebba. Formaður bændasamtakanna stöðvaði okkur stjórnarmenn í anddyrinu á Sögu og vildi fá að vita hvaða starfsemi væri stunduð í fyrirtæki sem héti Stinning ehf. Nafnið gæfi ástæðu til að ætla að við stæðumst ekki nýsamþykktar siðferðiskröfur íslenskra bænda. Við fengum inngöngu eftir að ég hafði útskýrt að nafnið Stinning vísar til þess að fyrirtækið framleiðir hraðsteypu. Gísli í Senathor kjötvinnslu hf. fékk þá snjöllu viðskiptahugmynd í dag að hann væri skyldur Thorsurunum. Hann keypti forskalaðan timburkofa, sem amma hans átti við Meðalveg, fyrir 450 millur. Hann ætlar að koma þar upp safni um sjálfan sig og Elton John. Safnið verður opið fólki sem hefur verið almenningur í meira en fimm ár. Félagsmálaráðuneytið hefur notað kofann fyrir opinberanir og kynferðisofbeldi. Mál að koma sér í rúmið. Muna að þakka Moody fyrir lánhæfismatið þegar ég fer með bænirnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Örn Marinósson Mest lesið Halldór 5.10.2024 Jón Þór Stefánsson Halldór Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Stefán Ólafsson Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun Spilling á Íslandi: Erum við að missa tökin? Ágústa Árnadóttir Skoðun Sleppum brúnni og förum betri leið framhjá Selfossi Elliði Vignisson Skoðun Af ofurhetjum og störfum þeirra Kristín Björnsdóttir Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Að dansa í regninu Lóa Björk Ólafsdóttir Skoðun Uppeldi frá gamla einmenningar eins-skin-litar viðhorfum Matthildur Björnsdóttir Skoðun Einstakur atburður og viðbúnaður Marinó G. Njálsson Skoðun
Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun
Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun
Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun
Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun