Sport

Snorri og Garcia fóru hamförum

Snorri Steinn Guðjónsson og Jaliesky Garcia, sem báðir hlutu náð fyrir augum Viggó Sigurðssonar landsliðsþjálfara í gær, fóru hamförum með félagsliðum sínum í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Snorri Steinn skoraði átta mörk fyrir Grosswallstadt sem sigraði meistara Flensborg, 27-25. Jaliesky Garcia skoraði einnig átta mörk fyrir Göppingen sem sigraði Gummersbach, 30-25. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Essen sem sigraði Wetzlar 37-30. Arnór Atlason skoraði tvö mörk fyurir Magdeburg sem burstaði Düsseldorf, 35-27.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×