Sport

Fram og FH sigruðu

Þá er leikjunum þremur í 1. deild karla í handknattleik sem fram fóru í kvöld lokið. Fyrr í kvöld sigraði Stjarnan Grótta/KR og núna rétt í þessu lagði efsta liðið, FH, Aftureldingu að velli í Hafnafirði með 34 mörkum gegn 27. Á Selfossi lágu heimamenn gegn Fram með tíu marka mun, 23-33. Eftir leiki kvöldsins eru FH-ingar efstir með 15 stig og Frammarar hafa 14. Grótta/KR hefur 9, Afturelding 8, Stjarnan 5 og Selfoss rekur lestina með 3 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×