Sport

Handbolti kvenna - Stórsigur Hauka

Fjórir leikir fóru fram í úrvaldsdeild kvenna í handknattleik í kvöld. Haukar frá Hafnafirði unnu stórsigur á Fram þar sem lokatölur urðu 50-21. Víkingar sigruðu Valsstúlkur örugglega 26-18, ÍBV sigraði FH 24-20 og Grótta/KR tapaði heima gegn Stjörnunni 24-32. Eftir leiki kvöldsins eru Haukar efstir með 34 stig, ÍBV hefur 32 og Stjarnan 23. Framarar eru neðstir með sjö stig og Víkingar og Grótta/KR eru þar fyrir ofan með 10 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×