Lofar að leggja áherslu á efnahagsmál
Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, tók í nótt formlega við útnefningu Demókrata sem forsetaframbjóðandi flokksins í komandi kosningum vestanhafs. Í ræðu sinni á síðasta kvöldi flokksþings Demókrata sem fram fór í gær lofaði Harris að verða forseti allra Bandaríkjamanna og leggja áherslu á efnahagsmál.