Ætlar að styrkja lagningu ljósleiðara
Ríkið ætlar að styrkja lagningu ljósleiðara til heimila í rúmlega hundrað smærri þéttbýliskjörnum á landinu sem ekki fengu tengingu í átakinu Ísland ljóstengt. Með þessu muni hvert einasta lögheimili á Íslandi vera tengt ljósleiðara og því njóta öflugrar nettengingar.